10. september 2024
10. september 2024
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík
Brot 28 ökumanna voru mynduð á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kaplaskjólsveg í suðurátt, á móts við Kaplaskjólsveg 67. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.
Vöktun lögreglunnar á Kaplaskjólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.