Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. október 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík

Brot 63 ökumanna voru mynduð á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kaplaskjólsveg í suðurátt, að Frostaskjóli. Á einni klukkustund, um miðjan dag, fóru 108 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 58%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 55.

Eftirlit lögreglunnar á Kaplaskjólsvegi var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum við götuna en þeir hafa kvartað undan hraðakstri.