Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. apríl 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hvannavöllum í Hafnarfirði

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Hvannavöllum í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvannavelli í austurátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hvannavöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.