18. nóvember 2019
18. nóvember 2019
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík – vestur
Brot 187 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 13. nóvember til föstudagsins 15. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 17.963 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93.
Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.