7. febrúar 2019
7. febrúar 2019
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík
Brot 70 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 4. febrúar til miðvikudagsins 6. febrúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 10.080 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 97. Fimm ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.