Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. febrúar 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 66 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 30. janúar til föstudagsins 1. febrúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 10.768 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjö ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.