10. október 2018
10. október 2018
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík
Brot 94 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 8. október til miðvikudagsins 10. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 13.188 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.
Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.