Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. júlí 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 26. júlí til föstudagsins 27. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tæplega einum sólarhring fóru 5.947 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 87 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 117.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.