Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. júní 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 88 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 18. júní til miðvikudagsins 20. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur dögum fóru 13.593 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.