Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. febrúar 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Birkimel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 618 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.