Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. mars 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 165 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá þriðjudegi til miðvikudags. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á rúmlega nítján klukkustundum fóru 4.859 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sextíu og sex óku á 80 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 108.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.