10. ágúst 2016
10. ágúst 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík
Brot 45 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Njarðargötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 733 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 88.
Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.