Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. apríl 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 200 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, að Nauthólsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 846 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og átta óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 95.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.