Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. apríl 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á móts við Hringbraut 108. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 282 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.