Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

29. maí 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 71 ökumanns var myndað á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Birkimel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 480 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 72.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.