6. júlí 2023
6. júlí 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík
Brot 72 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Furumel. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 411 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.
Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.