Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

29. mars 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 350 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 24. mars til mánudagsins 29. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á fimm sólarhringum fóru 21.577 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 104.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.