Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. ágúst 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, við Birkimel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 536 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.