22. mars 2021
22. mars 2021
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík
Brot 107 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 15. mars til miðvikudagsins 17. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 9.539 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 88. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.