15. mars 2021
15. mars 2021
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík
Brot 212 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 12. mars til mánudagsins 15. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á þremur sólarhringum fóru 14.761ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 102. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.