Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. nóvember 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 75 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 4. nóvember til föstudagsins 6. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tæplega tveimur dögum fóru 13.347 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.