Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. apríl 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Birkimel. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 510 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.