Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. ágúst 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 52 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, við Vesturvallagötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 329 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sjö óku á 60 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.