Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. ágúst 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 47 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 6. ágúst til föstudagsins 7. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á einum sólarhring fóru 8.300 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 89.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.