Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. júní 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 181 ökumanns var myndað á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 15. júní til fimmtudagsins 18. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á þremur sólarhringum fóru 18.469 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 106.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.