13. júní 2011
13. júní 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík
Brot 165 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Bústaðavegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 618 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og átta óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 103.
Þess má geta að lögreglan var við hraðamælingar á þessum sama stað í mars og þá var brotahlutfallið 18% en meðalhraði hinna brotlegu var svipaður og á föstudag.