8. júní 2020
8. júní 2020
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík
Brot 311 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 4. júní til mánudagsins 8. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á fjórum sólarhringum fóru 27.136 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 115.
Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.