20. september 2019
20. september 2019
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík
Brot 76 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 18. september til föstudagsins 20. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fór 11.921 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.