Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. ágúst 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 82 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 21. ágúst til föstudagsins 23. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 12.628 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.