18. júlí 2019
18. júlí 2019
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík
Brot 92 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, við Vesturvallagötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 322 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.
Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.