1. júlí 2019
1. júlí 2019
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík
Brot 133 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 26. júní til föstudagsins 28. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 12.114 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.