Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. apríl 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Reykjavík

Brot 92 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 1. apríl til miðvikudagsins 3. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 11.703 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108. Fimm ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.