Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. mars 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Hafnarfirði

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í suðurátt, á móts við Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 92 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.