Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. mars 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Hafnarfirði

Brot 46 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í suðurátt, gegnt Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 112 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.