Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. ágúst 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Hafnarfirði

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í norðurátt, á móts við Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 77 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar við skóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.