Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. október 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hringbraut í Hafnarfirði

Brot 29 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í suðurátt, á móts við Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 111 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 62.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sólskin og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.