Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. mars 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Hraunbrún í Hafnarfirði

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Hraunbrún í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbrún í suðurátt, að Tunguvegi. Á tæpri einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 20 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 55%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Einn ökufantur skar sig úr á Hraunbrún í dag en ökutæki hans mældist á 82.

Eftirlit lögreglunnar á Hraunbrún er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Hraunbrún var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.