Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. október 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu

Tæplega fimmtíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina en í grófustu brotunum var ekið á 40-50 km hraða umfram leyfðan hámarkshraða. Mikill meirihluti hinna brotlegu voru karlar en einn þeirra reyndist jafnframt ölvaður. Karlarnir eru flestir á þrítugs- og fertugsaldri en nokkrir eru undir tvítugu og tveir eru á áttræðisaldri. Sex konur voru stöðvaðar í þessu hraðaeftirliti en þær eru á aldrinum 20-40 ára.