17. október 2014
17. október 2014
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Höfðabakka í Reykjavík
Brot 104 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í norðurátt, á móts við Árbæjarsafn. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 595 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tíu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88.
Vöktun lögreglunnar á Höfðabakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.