Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. júní 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Höfðabakka í Reykjavík

Brot 79 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í norðurátt, á móts við Árbæjarsafn. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 695 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjö óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Höfðabakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.