Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. október 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Höfðabakka í Reykjavík

Brot 83 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í suðurátt, á móts við Árbæjarsafn. Á einni klukkstund, fyrir hádegi, fóru 508 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjö óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 85.

Vöktun lögreglunnar á Höfðabakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.