9. júní 2026
9. júní 2026
Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Breiðholtsbraut, Þingvallavegi, Hafnarfjarðarvegi, Reykjanesbraut, Sæbraut og Arnarnesvegi.

1.6 2026
Brot 86 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Breiðholtsbraut, að Arnarnesvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 575 ökutæki þessa akstursleið og því óku 17% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði (vegna framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 81.
Brot 13 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Þingvallaveg, við Tjaldanes. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 118 ökutæki þessa akstursleið og því óku 11% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95.
2.6 2026
Brot 94 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Hafnarfjarðarveg, við Arnarnesvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 970 ökutæki þessa akstursleið og því óku 10% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 136.
3.6 2026
Brot 66 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Reykjanesbraut, við Straum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 385 ökutæki þessa akstursleið og því óku 17% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 106 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 132.
Brot 29 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Sæbraut, við Kirkjusand. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 630 ökutæki þessa akstursleið og því óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 86.
4.6 2026
Brot 65 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Arnarnesveg, að Sólsölum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 255 ökutæki þessa akstursleið og því óku 25% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.