Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. janúar 2026

Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu

Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Borgavegi, Stekkjarbakka, Jónsgeisla og Hafnarfjarðarvegi.

19.1 2026

Brot 568 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 12. - 19. janúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 44.387 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 107. Fimmtán ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

19.1 2026

Brot 68 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Borgaveg, að Strandvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 214 ökutæki þessa akstursleið og því óku 32% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 64.

20.1 2026

Brot 35 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Stekkjarbakka, við Heimahvamm. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 382 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

21.1 2026

Brot 27 ökumanna voru mynduð í Jónsgeisla í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Jónsgeisla, á móts við Jónsgeisla 1. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 164 ökutæki þessa akstursleið og því óku 16% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

22.1 2026

Brot 41 ökumanns var myndað á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Hafnarfjarðarveg, við Arnarneslæk. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 727 ökutæki þessa akstursleið og því óku 6% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 112.