26. ágúst 2026
26. ágúst 2026
Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Arnarnesvegi, Suðurlandsvegi, Korpúlfsstaðavegi, Vesturlandsvegi, Reykjanesbraut og í Austurbergi.

17.8 2026
Brot 213 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 13. – 17. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 26.905 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 137. Átta ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Brot 46 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Arnarnesveg, að Salavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 452 ökutæki þessa akstursleið og því óku 10% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.
18.8 2026
Brot 53 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Suðurlandsveg, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 574 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 103 en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 122.
Brot 43 ökumanna voru mynduð á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Korpúlfsstaðaveg, við Bakkastaði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 178 ökutæki þessa akstursleið og því óku 24% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 88.
20.8 2026
Brot 155 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 17. - 20 ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 24.906 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 112. Fimm ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Brot 156 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Vesturlandsveg, við Suðurlandsveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.189 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 127.
21.8 2026
Brot 67 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Reykjanesbraut, í Hvassahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 449 ökutæki þessa akstursleið og því óku 15% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 109 en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 133.
Brot 60 ökumanna voru mynduð í Austurbergi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Austurberg, við Austurberg 16-20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 154 ökutæki þessa akstursleið og því óku 39% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 61.