Fara beint í efnið

2. júní 2026

Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu

Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Reykjavíkurvegi, Safamýri, Langholtsvegi, Álfhólsvegi, Vesturlandsvegi og Lönguhlíð.

27.5 2026

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Reykjavíkurveg, við Sjónarhól. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 401 ökutæki þessa akstursleið og því óku 4% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 52 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Brot 9 ökumanna voru mynduð í Safamýri í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Safamýri, við Víkingaheimilið. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 67 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

28.5 2026

Brot 42 ökumanna voru mynduð á Langholtsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Langholtsveg, að Holtavegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 117 ökutæki þessa akstursleið og því óku 36% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Álfhólsveg, við Álfhólsveg 90. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 68 ökutæki þessa akstursleið og því óku 28% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 45.

29.5 2026

Brot 142 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Vesturlandsveg, að skógrækt í Hamrahlíð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.093 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 110.

Brot 87 ökumanna voru mynduð í Lönguhlíð í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Lönguhlíð, að Bólstaðarhlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 386 ökutæki þessa akstursleið og því óku 23% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90.