Fara beint í efnið

18. júní 2026

Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu

Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Suðurlandsvegi, Kringlumýrarbraut, Hringbraut, Vesturlandsvegi, Stekkjarbakka, Álftanesvegi, Strandgötu og Reykjanesbraut.

8.6 2026

Brot 50 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Suðurlandsveg, í Lögbergsbrekku. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 428 ökutæki þessa akstursleið og því óku 12% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 119.

Brot 61 ökumanns var myndað á Kringlumýrarbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Kringlumýrarbraut, við Sigtún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 517 ökutæki þessa akstursleið og því óku 12% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94.

9.6 2026

Brot 71 ökumanns var myndað á Hringbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Hringbraut, við Furumel. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 506 ökutæki þessa akstursleið og því óku 14% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 72.

10.6 2026

Brot 2 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Vesturlandsveg, í Kollafirði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 374 ökutæki þessa akstursleið og því ók 1% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðar ók mældist á 111.

Brot 76 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Stekkjarbakka, við Heimahvamm. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 720 ökutæki þessa akstursleið og því óku 11% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.

11.6 2026

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í Garðabæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Álftanesveg, við Garðahraun. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 264 ökutæki þessa akstursleið og því óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 98.

Brot 23 ökumanna voru myndað á Strandgötu í Hafnarfirði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Strandgötu, við Hellubraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 483 ökutæki þessa akstursleið og því óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 51 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 61.

12.6 2026

Brot 116 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Reykjanesbraut, að Breiðholtsbraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.375 ökutæki þessa akstursleið og því óku 8% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 107.