Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. febrúar 2026

Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu

Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Suðurlandsvegi, Bæjarbraut, Vesturlandsvegi og Hringbraut.

9.2 2026

Brot 605 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 2. - 9. febrúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 47.927 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 123. Tuttugu og tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

9.2 2026

Brot 59 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Suðurlandsveg, við Sandskeið. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 338 ökutæki þessa akstursleið og því óku 17% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 107 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 130.

10.2 2026

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Bæjarbraut, að Karlabraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 95 ökutæki þessa akstursleið og því ók 21% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.

Brot 147 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Vesturlandsveg, við Korputorg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 836 ökutæki þessa akstursleið og því óku 18% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 96 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 129.

11.2 2026

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Hringbraut, við Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 107 ökutæki þessa akstursleið og því ók 41% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.