Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. desember 2025

Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu

Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Kringlumýrarbraut, Bæjarhálsi, Hringbraut, Bústaðavegi, Hafnarfjarðarvegi, Nýbýlavegi og Borgartúni.

8.12 2025

Brot 570 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 1. - 8. desember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 47.533 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 120. Tuttugu og fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

8.12 2025

Brot 78 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Kringlumýrarbraut, við N1. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.701 ökutæki þessa akstursleið og því óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 106.

9.12 2025

Brot 41 ökumanns var myndað á Bæjarhálsi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Bæjarháls, við Orkuveituna. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 358 ökutæki þessa akstursleið og því óku 11% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Brot 39 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Hringbraut, að Bræðraborgarstíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 466 ökutæki þessa akstursleið og því óku 8% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 72.

10.12 2025

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Bústaðaveg, að Grensásvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 362 ökutæki þessa akstursleið og því óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 52 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Brot 66 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Hafnarfjarðarveg, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 900 ökutæki þessa akstursleið og því óku 7% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 115.

11.12 2025

Brot 94 ökumanna voru mynduð á Nýbýlavegi í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Nýbýlaveg, að Álfabrekku. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 554 ökutæki þessa akstursleið og því óku 17% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 88.

12.12 2025

Brot 23 ökumanna voru mynduð í Borgartúni í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Borgartún, við Arionbanka. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 189 ökutæki þessa akstursleið og því óku 12% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.