Fara beint í efnið

1. júlí 2026

Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu

Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Listabraut, Kársnesbraut, Sæbraut og Flókagötu.

22.6 2026

Brot 67 ökumanna voru mynduð á Listabraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Listabraut, að Hvassaleiti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 158 ökutæki þessa akstursleið og því óku 42% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Brot 2 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Kársnesbraut, að Hábraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 349 ökutæki þessa akstursleið og því ók 1% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

25.6 2026

Brot 103 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður.Sæbraut, að Súðavogi Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 720 ökutæki þessa akstursleið og því óku 14% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95.

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Flókagötu í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Flókagötu, við Kjarvalsstaði Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 94 ökutæki þessa akstursleið og því óku 36% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.