Fara beint í efnið

19. október 2026

Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu

Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Neshaga, Breiðholtsbraut, Snorrabraut, Sæbraut, Reykjavíkurvegi, Arnarnesvegi og Suðurlandsvegi.

12.10 2026

Brot 203 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 5. - 12 október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 47.423 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 131. Fimm ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Neshaga í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Neshaga, að Hjarðarhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 126 ökutæki þessa akstursleið og því óku 24% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

13.10 2026

Brot 118 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Breiðholtsbraut, við Rjúpufell. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 477 ökutæki þessa akstursleið og því óku 25% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95.

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Snorrabraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Snorrabraut, að Vífilsgötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 263 ökutæki þessa akstursleið og því óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 50 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

14.10 2026

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Sæbraut, við Kleppsveg 60. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 652 ökutæki þessa akstursleið og því óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 87.

15.10 2026

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Reykjavíkurveg, við Sjónarhól. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 382 ökutæki þessa akstursleið og því ók 1% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 50 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Brot 71 ökumanns var myndað á Arnarnesvegi í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Arnarnesveg, við Turnahvarf. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 311 ökutæki þessa akstursleið og því óku 23% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.

16.10 2026

Brot 75 ökumanna var myndað á Suðurlandsvegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið austur Suðurlandsveg, í Lögbergsbrekku. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 572 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 123.